viðskipti eru góð
22.03.2010 19:21:01 / braski

Hver vinnur til verðlauna?

Sá fyrsti af mínum vinum til að lesa þetta blogg fær að verðlaunum 2 kippur af bjór eða sambærilegu.
Verðlaun þessi renna aldrei út en það er hægt að tryggja sér þau með því að kvitta á eftir þessari færslu.
Ef að þið viljið vita af mér þá verð ég á Facebook.
Mikið meiri hræsni er varla hægt að hugsa sér.

Sævar Páll, sem kveður úr bloggheimum í bili


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.03.2009 22:39:50 / braski

facebook

Helvítis Facebook...

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.01.2009 12:20:36 / braski

nýir tímar, ný blogg

Jæja, það virðist vera svo rammmóðins að skrifa blogg svona í upphafi nýs árs að ég ætla að láta verða af því líka.

Svona til að draga aðeins saman hvað hefur verið að gerast má þá helst nefna að ég er hættur hjá Hamri EHF á Akureyri frá 12 desember síðastliðnum. Ástæða uppsagnarinnar var að ég ætlaði mér ekki að vera lengur frá skóla í einu en þetta tiltekna ár.
Núna er maður sumsé kominn í skólann á fullu trukki aftur eftir að hafa hlaðið batteríin og ætla nú að reyna að klára þetta blessaða nám mitt, sem ætti að taka ca 3 annir.

Jólin hjá okkur voru bara með ágætasta móti, jafnvel þó að Björg hafi þurft að vinna fram á hádegi á aðfangadag, en á meðan skrapp ég bara í sveitina og gerði við bíla fyrir föðurfamelíuna.
Aðfangadagskvöld var haldið hjá Gittu, var bara þokkalega kósí þrátt fyrir að manni fyndist eins og eitthvað væri ekki eins og það ætti að vera...

Áramótin sjálf voru haldin í sveitinni heima í góðum félagsskap, glápt á skaupið, sem var reyndar merkilega vel lukkað, síðan var skroppið útfyrir  og bomaðar nokkrar rakettur, farið inn og étið aðeins meira, fenginn sér kaffisopi og meira konfekt og svo var haldið inneftir. Þegar þangað var hins vegar komið var staðan sú að heilsufarið leyfði ekki meira ein eina vínflösku og síðan var bara farið í bólið.

Annars er bara allt fínasta að frétta, ég hef aldrei verið góður við að enda bloggfærslur svo að

hún

endar

hérna

!




» 1 hafa sagt sína skoðun

16.09.2008 19:37:37 / braski

Vespur

Í tilefni þess að það er hrikalega langt síðan að ég bloggaði ákvað ég að taka smá pistil um vespur.
Ég veit ekki hvort margir hafa tekið eftir því að það eru á leiðinni nýar reglur fyrir mótorhjólafólk sem að varða hlífðarfatnað og bókstaflega skildar mótorhjólafólk til þess að klæðast viðurkendum hlífðarfatnaði frá viðurkendum aðilum sem er seldur á viðurkenndum stöðum. Þetta eitt og sér er svosem ekki svo vitlaust, gæti dregið úr alvarlegum áverkum sem annars myndi hljótast af óvönduðum eða jafnvel engum hlífðarbúnað (maður hefur oft séð ofursvala töffara á hjólunum sínum í gatslitnum gallabuxum og hlírabolum) , en aftur á móti gerir það að verkum að allur hlífðarbúnaður verður fokdýr, þar sem að hann verður flokkaður sem öryggisbúnaður.
Auk þess eru allar merkingar á fatnaði bannaðar.
Þessar reglur eru samt, að mér finnst, fremur mikil stjórnsemi í hinu opinbera, það eigi fremur að treysta á almennna skynsemi ökumannanna sjálfra. Ef einhver í ófullnægjandi klæðnaði skyldi lenda í því að detta á hjólinu sínu þá á að vera hægt að taka því sem vísu að að hann læri af því og fái sér betri hlífar.
Ekki misskilja mig, ég veit það vel að að það er tóm heimska að fara að keyra í röngum klæðnaði, en mér finnst bara að það þurfi ekki að skilda fólk til að klæðast þessu og beita fjársektum til refsingar.

En með þetta til hliðsjónar langar mig að horfa á vespueigendur. Ég hef aldrei nokkurtímann séð ökumann á vespu klæðast hlífðarbúnaði að neinu tagi! vott þe fokk? hvað er í gangi þar??
Það eina sem að er skilda á vespu er að vera með hjálm. Af hverju er þetta fólk ekki í hlífðarfatnaði? Þótt svo að ekki allar vespur komist uppfyrir 50 km /h þá þíðir það samt ekki að það sé ekki hægt að lenda í alvarlegum slysum. T.d maðurinn sem að fór Reykjavík-Akureyri á 2000 kalli og á forsíðu Fréttablaðsins var mynd af honum í gallabuxum og anorakk?

Allavega, ætla að fara að gera eitthvað sniðugt.
Verið bæ


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 10:34:32 / braski

Tvö blogg á innan við mánuði!!!

Eins og ég var búinn að lofa þá er ég að reyna að vera duglegri bloggari.
Það er ekkert markvert í fréttum af okkur í bili, svo að ég ætla bara að skrifa um eitthvað annað.

Mótmæli.
Eins og einhverjir hafa orðið varir við þá hafa vörubílstjórar, ásamt honum Meðal Jón, verið að mótmæla skattlagninu á eldsneyti, auk þess sem að vörubílstjórar eru líka að reyna að fá í gegn að sett verði upp hvíldaraðstaða fyrir þá.
Ég hef heyrt í  nokkrum sem sýna þessu málefni engan skilning. Maður hefur heyrt línur eins og: "Þeir geta bara hallað sætinu aftur og sofið þar", "Þeir geta farið á bensínstöðvarnar og fengið sér kaffi",  "Þeir þurfa ekki að keyra svona langt", " Þeir geta bara lagt sig í beddunum afturí" og allt þar fram eftir götunni.

NR 1: Plássið fyrir aftan sætið á mjög mörgum þessum bílum er það lítið að það er rétt pláss fyrir verkfærasett og einhverja smáhluti.
Sætið á þessum bílum er ákaflega óþægilegt þegar búið er að skella því aftur og að sofa einhvern tíma í því veit ég að er pein fyrir bakið.

NR 2: Þeir eiga semsagt að sleppa því að sofa og drekka bara meira kaffi?! fyrir utan það að bensínstöðvarnar eru ekki opnar allan sólarhringinn, og það er gríðarleg umferð af þessum bílum á ferðinni á nóttunni þar sem að þeir sleppa við mestu umferðina.

NR 3: Jú, þeir fá borgað fyrir að keyra svona langt. Við gætum náttúrulega sleppt því að fara með vörur út á land, og látið þá helvítis bændurnar svelta, það er hvort sem er ekkert á þeim að græða, og þá þyrftum við ekkert að keyra svona langt.

NR 4: Það eru ekki allir þessir bílar útbúnir með þessa hundabekki og þeir eru langt frá því sambærilegir almennilegu rúmi. Rykugt, þröngt, óþægilegt, kalt á veturnar. til að halda yl á mörgum þessara bíla þarf að láta þá malla hægagang í fleiri tíma og það mengar.

Sumir virðast greinilega frekar vilja mæta ósofnum, pirruðum, koffeinhlöðnum, og  bakveikum vörubílstjórum á  49 tonna  trukk  á frekar mögrum vegum landins.

Aðfarir Lögreglunar við múgstjórnun eru fyrir neðan allar hellur og minna meira á það sem maður hefur heyrt í verstu fasistaríkjum, og mætti halda að löggæslufólk hafi verið sent
á námskeið hjá kommonistaskólanum í Tíbet!


Hvað sem eldsneytisverði við kemur þá er þetta málefni gríðarlega aðkallandi og verðskuldar einróma stuðning allra viti borna manna.

Power To The People!

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 22:37:02 / braski

Stoltur Íslendingur!!!

Já, það má segja að þessa daganna sé ég stoltur Íslendingur.
Ástæðan er að nú hafa Íslendingar loksins tekið höndum saman og dregið ríkisstjórnardrjólan út út rassgatinu á sér.
Þegar er farið að sjá breytingar, bensínlíterinn var kominn niður fyrir 130 krónur sem er STÓRT skref.
Hitt málið með hvíldaraðstöðunna fyrir þá. Þetta er mér tengt því að trukkaakstur er starf sem að ég get alveg ýmindað mér að vinna við í náinni framtíð.
Fyrir þá sem ekki vita þá er semsé til lögbundinn hvíldartími vörubílstjóra sem er kallarnir á skrifstofunni eru grjótharðir á og senda stórar sektir ef að svindlað er á því kerfi en það eru ekki til  aðstaða til að fylgja því eftir. Bílstjórarnir þurfa yfirleitt að sofa í eigin bílum, þreyttir og skítugir, engin skipulögð sturtuaðstaða, engin skipulögð hreinlætisaðstaða og þar fram eftir götunum.

En, allavega, nú má segja að ég sé farinn að fullorðnast. Ég á bara einn bíl núna sem að er skráður á mitt nafn, Volvo S40 2000 módelið sem að ég á með Björgu...
Það er öðruvísi að eiga " svona... Fullorðins " bíl.

Björg átti líka afmæli um daginn, fékk alveg helling af sniðugum gjöfum, sem er hægt að skoða betur á síðunni hennar.

Þetta held ég að sé orðið gott, nenni ekki að skrifa meira í bili,
                                                     
                                       Power to the people! Palli

                                             P.s Valey, ég skal reyna að vera duglegri bloggari framvegis:$

              

» 5 hafa sagt sína skoðun

26.01.2008 18:38:45 / braski

Ammælis/Skóla/prófa/Prófloka/Flutninga/Jólfrís/Jólagjafa/Áramóta/Nýárs/Nýavinnann/ogsvoframleiðis

Jæja, það hefur liðið svolítill tími síðan að ég drullaðist til að skella inn færslu á þessa síðu, ástæðan hefur einfaldlega verið svo að ég hef ekki nennt að gefa mér tíma í það að setjast fyrir framann tölvuna og láta dælurnar ganga.

 

en svona í fáum orðum, Afmælið mitt var gríðarlega vel heppnað að mínu mati, eyddi honum mestmegnis með tengdarfamilíunni, þar sem að tengdarmúttan á afmæli á sama dag. Birgitta Bjargarsystir eldaði æðislegan mat fyrir tengdó sem ég fékk að njóta góðs af.

ég fékk slatta af gjöfum, til dæmi fékk ég péning frá gamla settinu til að versla mér síma og æðislega bók frá Björgu sem að heitir The Ultimate guide to muscle cars.

 

Svo að prófunum. í stuttu máli: náði, náði, náði, náði og náði. einkanir 6-9. helvíti gott miðað við það að ég eyddi ákaflega takmörkuðum tíma í bækur þessa önn. (sem og reyndar eins og allar hinar)

 

í jólafríinu var líka alveg óggslega gaman:lol: bara legið heima og dútlað sér, chillað, láta sér líða vel, missa sig í konfektáti, glápa á myndir, flytja úr litlu kompunni sem við bjuggum í niður í ágætlega plássgott kjallaraherbergi, sem okkur líður ákaflega vel í.

 

Jólagjafir. Jólagjafir góðar:D ég fékk jólagjafir. helling af þeim. ég hef greinilega verið góður strákur í ár:$

 

ég fékk meðal annars Play Station 2 frá Björgu, rándýrt verkfærasett frá pabba og mömmu, og helling af æðislegum gjöfum:!:

 

Áramótin voru líka geggjuð. við vorum hér heima í Þingó yfir áramótin, átum æææðislegt lambalæri sem að tengdó eldaði, hvítlauksstungið... nammi gott. Og að sjálfsögðu þambaður bjór með öllu þessu. Við versluðum sprengiefni fyrir tæpan 8000 kall og hann var allveg þess virði. síðan var farið til Bjögga og ValeyjarSöru og partíað fram í rauðann dauðann.

 

Nýa vinnan hjá mér er hjá vélsmiðjunnni Hamri EHF. ég er aðalega í því að skera og sjóða og skrúfa og brasa. gaman gaman. mikið gaman mikið grín... Byrjaði þar 2 janúar og sé fram á að koma til með að klára samningstímann minn þar sem er kominn niður í 12 mánuði.

 

en já, þetta var víst ekki svo stutt mál þegar maður skoðar þetta... en í stuttu máli þetta hefur verið viðburðarríkur tími hjá mér, og alveg einstaklega ánægjulegur.

ég þakka þeim sem hlýddu, góðar stundir.

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 18:18:43 / braski

time flies...

...when you're having fun.

þessi frasi hefur oft og mörgusinnum komið í huga mér á líðandi ári.

 Vorönninn er búinn... ég held að ég hafi verið á henni.... páskarnir? ég hlít að hafa sofið þá af mér:^) Sumarið? út um gluggann, búið fínito... bara...púff!

það er farið að nálgast í jól!   en...   en ... þau eru svo nýbúin..? er það ekki?

ég held að ég geti sagt með vissu að ég man varla eftir því að heilt ár hafi horfið svona gjörsamlega fyrir framan nefið á mér.8| 

 

en þegar maður spáir betur í því þá man maður eftir öllu því æðislega sem að maður hefur gert á árinu hingað til. slá nýtt met í einkunnum á vorönninni sem ég ekki man eftir, keyra allskyns stórvirkar vinnuvélar, allt frá minigröfu uppí Búkollur. keyra hringinn, slá enn á ný met í suðurferðum, og eiga í smávægilegum bílaviðskiptum hér og þar:$                                         en skemmtilegast er að drifta aftur og hugsa um alla þá snilldar tíma sem maður hefur eitt með vinum og kunningjum...

 

en allavega, bara smá pælingar hjá mér...

Capes out!


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.08.2007 00:15:53 / braski

brjálað að gera...

það er helst í fréttum um þessar mundir er víst að ég er hættur í bili hjá Árna Helgasyni EHF og er farinn aftur í skólann... i sure am gonna miss thease paychecks...:|

en þetta er svona, atli ég verði ekki að klára það sem ég byrjaði á, three years down, two to go!

ég er annars opinberlega fluttur í Þingvallastræti 18( öllum að óvörum...:o ) kominn meira segja með fataskáp sem er "hóst" næstum því "hóst" alveg hrikalega góður...

 

svo er ég að leggja af stað innan margra tíma í aðra reisu mína suður núna í þessum mánuði. ástæður eru sem svo oft margar, en til dæmis er ég að fara að ná mér í minn sjötta bíl á árinnu sem að ég er að eignast í braski.

 

en nóg af mér í bili, i'll be back some other time

 

þangað til; veriði sæl


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 16:09:13 / braski

And now for something completely different!

Látið ekki fyrirsögnina plata ykkur, þetta er bara ég að þrasa...

 

Í fréttum er þetta helst:

 

Ég er ennþá að vinna hjá Árna Helgasyni EHF við akstur og ýmsar misgáfulegar æfingar á fjölbreytilegum tólum og tækjum, s.s vörubílum, búkollum, risavíbrörum o.s.frv.

Ennþá á ég í erfiðleikum með að ná glottinu sem að festist á fésinu á mér hérna laust uppúr mánaðarmótum, þegar ég leit á bankayfirlitið... :Þ

 

Einnig er rétt að segja frá Bíladögum 2007 á Akureyri, sem að má segja að hafi sjaldan heppnast eins vel. Eins og við var að búast var slegið nýtt áhorfandamet á ölllum viðburðum BA þessa helgi, enda hafa aðstæður sjaldan verið betri. Klúbburinn fékk leigðann Bogann, sem byggður var sem alhliða íþróttarathafnasvæði á vegum Akureyrarbæjar og hélt þar glæsilega sýningu undir einu þaki. Burnout-ið var með allra skemmtilegasta móti, þar sem að Akureyrarbær leigði okkur líka Akureyrarvöll með stúkusætum og gríðarmiklu brekkuplássi, en eins og við var að búast komust samt færri að en vildu

til samanburðar má geta að á stærsta fótboltaleik sumarsins sem haldinn hefur verið á þessum velli var ekki nema tæplega helmingur þeirra áhorfenda sem að þarna voru samkomnir!8|

 

götuspyrnan var að sjálfsögðu æðisleg að flestu leiti, og aldrei nokkurtíman hefur mætt eins mikill skari af bílum, en þeir voru um 60 talsins.

 

en nú í lokinn er smá sanntímafréttir, ligg lasinn uppí rúmi, með einhverja helvítis agnsvítans pest og líður eins og bölvuðum einingja...

 

í stuttu máli: Það er allt ágætt að frétta úr mínum herbúðum.

 

 

ef ég gæti nú bara komist að því hvaða draugur það er sem að er alltaf að skoða bloggið mitt án þess að kvitta væri ég alsæll...


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 01:02:10 / braski

jææja ekki allir í stuði?

já það er búið að vera smástund frá minni síðustu færslu ,( hvað er eitt ár milli vina...) svo að ég ákvað að skella inn nýu kommeti.

so here's some updates:

Búinn í prófum( fyrir ca hálfum mánuði reyndar....) assgotti gott bara, fékk eina fimmu( gleymdi að skila einu verkefni sem greinilega gillti slatta) einhverjar sjöur og áttur og síðan S (eða sloppinn) í HBF.

í stuttu máli sagt; bara assgotti gott.

 

Próflok: Pantaður sumarbússtaður (hvar annarstaðar en á Ólafsfyrði) og boðið þangar helling af liði en það mættu ekki alveg allir... Þetta voru sumsé  í við Björg, Björgvin og Valey Sara, Frelsarinn og frú, og Anna og Bjarni. Allir í banastuði ( fyrir utan suma sem voru komnir voru aðeins of neðalega í flöskuna), spilarinn í botni inní bústað, sumir voru í pottinum í djúpum samræðum sem oftar en ekki tengdumst samræði, aðrir fóru á hótelið og slettu úr klaufunum, því þau voru jú öll úr sveit..... badaram dish....

Mánudagur eftir bústað: Vinna. Trukkaakstur hjá Árna Helgasyni EHf, verktaki sem að er aðalega í því að smíða nýan veg handa Bónussvíninu og nágrönnum hans á Veigarstaðavegi hér rétt í rótum fjallsins.

 Helgin eftir próflok: Reykjavík, ó Reykavík... Aldrei nokkurtíman hef ég upplifað aðra eins veðurblíðu á þessum stað. þetta var bara nánast eins og slæmur febrúar á Akureyri! en öll veðurblíðan bliknaði samt þegar kom að sunnudagskveldi. Tónleika- Uriah Heep + Deep Purple = ÓJÁ!!! fucking ay!!! Geeeeggjaðir tónleikar!!! I WANNA GO AGAIN!!! ...ahhhh...

jæja nóg komið af kjaftæði í bili ef farinn að sofa, vinna klukkan átta í fyrramálið... ( BTW ólafsfyrðingar: ef Lágheiðin verður eitthvað skrítin í framtíðinni var það ekki mér að kenna!!)

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.08.2006 22:51:30 / braski

i bet it's chilly in hell right now!!!

Já það kom að því. það fraus í helvíti við -300°, ísland vann eurovision og O.J var sakfelldur. Ég, Sævar Páll Stefánsson er komin með bloggsíðu!!!

Jafnvel þó að hugmyndin hafi verið að dreifa hugsjónum mínum meðal fjöldans, grunar mig að megnið af efnisins á þessari síðu komi til með að vera hægt að tengja við einhverskonar bíla, tæki eða mótorsport að einhverju ráði.

hlakka allavega til að sjá hver verður fyrstur til að finna þessa síðu,

kveð að sinni; Páll Bloggari:klikk:


» 0 hafa sagt sína skoðun